Sun is God
Strandberg Publishing, ARoS & Tate
2021
Heildarverk J.M.W. Turner, sem er einn frægasti rómantíski málari Bretlands, sett upp í rit til að fylgja sýningu á verkum hans á ARoS safninu í Árósum, Danmörku. Sýningin var samvinnuverkefni ARoS og Tate og innihélt nokkur af frægustu verkum Turners og skissum. Bókin og sýningin eru hönnuð í takt og nota þannig sameiginlegan litaheim, uppbyggingu og grafík. Bókin er á dönsku, en ef hún var keypt á safninu fylgdi ensk þýðing með í sérriti. Turner er sérstaklega þekktur fyrir ótrúlegt vald á leik að ljósi og myrkri í málverkum sínum og vatnslitamyndum. Hringurinn vísar ekki aðeins í nafn bókarinnar, sólarinnar, heldur líka í að Turner var þekktur fyrir að nota göt — hringinn — til að rýna í verkin sín og stjórna þannig hvernig hann sá verkin sín og lífið í kringum sig. Hringurinn var líka áberandi í allri hönnun sýningarinnar.
Ljósmyndir: Anna Margrét Árnadóttir
Letur: Rakel Tómas