Efla
Efla
2024
EFLA er alþjóðlegt þekkingarfyrirtæki og tæknilega framsækinn vinnustaður með mikla áherslu á mannauð, jafnrétti og mýkt. Kraftmeiri ásýnd var sköpuð fyrir EFLU ásamt nákvæmu hönnunarkerfi. Merki EFLU var rýnt og uppfært og endurspeglar nú enn frekar kraftinn og hugvitið innan fyrirtækisins. Ákveðið var að eigna EFLU enn frekar rauðan lit ásamt því að þróa nýja litapallettu með vísun í kraft og litbrigði náttúrunnar. Aðalletrið Replica vísar til anda EFLU sem er kraftmikill og tæknilegur. Aukaletrið Domaine Text kallast svo fallega á með mýkt og fágun sem einkennir starfsemi EFLU. Myndmerki voru sérteiknuð með vísun í hringina í merki EFLU. Þau bæta við heildarröddina og bjóða upp á endalausa útfærslumöguleika. Þá var útbúið sérstakt veftól sem breytir ljósmyndum í einlitt hálftónamynstur. Litir eru sóttir í pallettu EFLU og hægt að nota mynstrin eftir hentugleika í kynningarefni, merkingar eða almennar myndlýsingar.